|
PÉTUR OG ÚLFURINN eftir Sergei Prokofiev Brúðuleikssýning eftir Bernd Ogrodnik Tónlist og saga: Sergei Prokofiev Leikgerð, hönnun leikmyndar, brúðugerð og leikmyndagerð: Bernd Ogrodnik Aðstoðar leikstjórn: Þórhallur Sigurðsson Búningar: Helga Björt Möller Tónlistarblöndun: Ari Baldursson Bearbeitung, Puppeteer, Puppets and set: Bernd Ogrodnik  Peter - Wolf Árið 1936 óskaði leikstjórinn Natali Ilyinichna Satz í barnaleikhúsinu í Moskvu eftir því að Prokofiv semdi tónverk sem fræddi ungt fólk um hljóðfæri sinfoníuhljómsveitarinnar. Hún vildi meina að árangri væri helst náð ef tónlistin fengi að segja söguna. Það tók snillinginn Prokofiv ekki nema viku að ljúka við söguna og semja viðeigandi tónlist og í lok annarar viku var hann búinn að útsetja verkið fyrir hljómsveit. Þetta eru persónurnar í sögunni og hljóðfærin sem túlka þær. Pétur – fiðla Fugl– flauta Önd – óbó Köttur – klarinett Afi – Básúna/fagot Úlfur– 3 horn Byssuskot veiðimannana – pákur Frá listamanninum Tónlist Prokofiev er svo ótrúlega falleg og myndræn að ég velti því lengi fyrir mér hvort viðeigandi væri að myndgera tónlist hans. Ég gat þó ekki staðist freistinguna. En ég hef reynt að virða verk tónskáldsins með því að halda mig algjörlega við upprunalegu söguna og láta tónlistina um að segja frá. Samkvæmt evrópskri og rússneskri hefð eru brúðurnar og leikmyndin eingöngu búnar til úr viði, linditré og íslensku birki. "Ég vona að sýningin veki jafnmikla ánægju hjá áhorfendum eins og hjá mér við sköpun hennar. Auk þess vona ég að hún reynist einhverjum hvatning til að kynna sér töfraheim sígildrar tónlistar." Lengd sýningar: 35 mínútur Fylgihlutir: (two outlets) og einn stóll Sýningarsvæði: lágmarksbreidd 3 metrar, lámarks dýpt 2 metrar Sérstakar þakkir til Naxos sem leyfði afnot af flutningi Czechoslovak Radio Symphony Orchestra á verkinu undir stjórn Ondrej Lenard og tekið var upp árið 1989. Sýningin var styrkt af Menningarsjóði KEA og Menningarsjóði barna.
| | | |  Peter - Wolf |  Peter - Wolf |  Peter - Wolf | | | | |  Peter - Wolf |  Peter - Wolf |  Peter - Wolf | |